Tímaþjófur á Ölstofunni 13. júlí 2006 09:00 Klukka staðarins. Úrverk Ölstofunnar mun ekki vera sérstaklega dýrt en gerir tilætlað gagn. MYND/heiða
Gestum á Ölstofu Kormáks og Skjaldar varð bylt við á dögunum þegar klukku staðarins var stolið. Veitingamennirnir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson eiga hins vegar hauk í horni þar sem ítalski barþjónninn Fabio la Marca er, því hann gerði sér lítið fyrir og hafði upp á þjófnum og endurheimti klukkuna. Uppi varð fótur og fit aðfaranótt laugardags þegar gestir á Ölstofunni tóku eftir því að klukka staðarins var horfin af veggnum sem hún hangir venjulega á. Eftir að hafa leitað klukkunnar dyrum og dyngjum lék ekki vafi á að henni hafði verið stolið en þegar barþjónar staðarins voru orðnir úrkula vonar um að sjá gripinn nokkurn tímann aftur hljóp hins vegar á snærið hjá þeim. "Ég var í pásu og brá mér aðeins út fyrir til að fá mér ferskt loft," segir Fabio la Marca, barþjónn á Ölstofunni. "Þá tók ég eftir ungum manni þarna fyrir utan en hann hafði verið inni fyrr um kvöldið. Ég sá að hann var að reyna að fela eitthvað innan undir jakkanum sínum og þegar betur var að gáð sást að þetta var klukkan." Þegar Fabio kallaði til mannsins og bað hann um að skila klukkunni tók tímaþjófurinn til fótanna. Fabio beið þá ekki boðanna heldur stökk á eftir honum og hljóp þjófinn uppi á örskotstundu. "Ég greip í hann og bað hann um að skila mér klukkunni sem og hann gerði mótþróalaust. Ég spurði hann hvað hann væri eiginlega að spá í að stela klukku og hann svaraði að sig hefði bara langað í hana. Hann var greinilega vel við skál," segir Fabio, sem minnnist þess ekki að hafa séð þennan bíræfna gest á Ölstofunni áður. Rummungurinn slapp þó með skrekkinn í þetta sinn því Fabio, sem fastagestir Ölstofunnar lýsa sem manni sátta, ákvað að kæra þjófnaðinn ekki til lögreglunnar. "Mér fannst nóg að fá klukkuna aftur. Þetta var bara eitthvert fyllerísrugl og maðurinn skammaðist sín greinilega." Fabio var tekið sem hetju þegar hann sneri aftur með klukkuna og klöppuðu gestir Ölstofunnar honum lof í lófa. Sjálfur gerir hann þó lítið úr afreki sínu. "Ég sá bara að hann var með klukkuna og ákvað að ná henni aftur. Þetta var ekkert stórmál." Klukkan er nú komin aftur á sinn stað upp á vegg og þurfa gestir Ölstofunnar því ekki að hafa áhyggjur af því að sitja of lengi fram eftir við ölið.
Menning Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira