Kalli Tomm með súpergrúppu 24. ágúst 2006 08:00 Einvalalið Birgir Haraldsson, Jóhann Ásmundsson, Nikulás Róbertsson, Sigurgeir Sigmundsson, Karl Tómasson, Magnús Stefánsson, Ágúst B. Linn og Hilmar Gunnarsson munu halda uppi stuðinu í Hlégarði á laugardaginn.
Karl Tómasson, trommuleikari og forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ, hefur safnað saman góðum vinum og hljóðfæraleikurum sem munu leika saman í Hlégarði á laugardagskvöldið. „Þessi dansleikur er haldinn í tilefni af bæjarhátíðinni Í túninu heima, sem haldin er annað árið í röð í Mosfellsbæ. Það er hefð fyrir því að foreldrafélagið Þrumur og Eldingar, sem er starfrækt í kringum yngri flokkastarfið í fótbolta hjá Aftureldingu, haldi öflugan dansleik einu sinni á ári í bæjarfélaginu. Að þessu sinni er sú uppákoma komin inn í þessa hátíð," segir Karl og bætir því við að bæjarfélagið muni iða af lífi alla helgina enda verði boðið upp á glæsilega dagskrá úti um allan bæ. „Undirbúningur hátíðarinnar hefur staðið lengi og það verður allt lagt í sölurnar." Karl stóð sjálfur fyrir því að safna saman tónlistarmönnum fyrir dansleikinn en grunnurinn að hljómsveitinni eru félagar hans úr Gildrunni. „Svo koma náttúrlega Hilmar og Gústi úr Hljómi, sem er vinsæll gítardúett í bæjarfélaginu. Magnús Stefánsson, trommuleikari Utangarðsmanna og Egó, verður með okkur en hann hefur alltaf verið einn af mínum uppáhaldstrommuleikurum. Einnig eru í hljómsveitinni Jóhann Ásmundsson úr Mezzoforte, Nikulás Róbertsson úr Paradís og Start auk aðalsöngvara kvöldsins, Birgis Haraldssonar úr Gildrunni," segir Karl en það er ljóst að einvalalið tónlistarmanna verður á sviðinu í Hlégarði á laugardagskvöldið. „Það verður nú einhver hreyfing á sviðinu þar sem við erum svo margir að við verðum væntanlega ekki allir á sviðinu í einu. Annars erum við búnir að æfa vel fyrir kvöldið og ég lofa hörkudansleik þar sem allir ættu að heyra eitthvað við sitt hæfi. Við verðum að mestu með lög frá hinum og þessum hljómsveitum en auðvitað tökum við einhverja gamla og góða Gildrusmelli." Karl segir stóra dansleiki haldna ótrúlega sjaldan í Mosfellsbæ. „Almennt er þó mjög góð mæting meðal heimamanna þegar þeir eru haldnir en það er eins hér og annars staðar að skemmtanalífið hefur færst meira inn á pöbbana." Þess má geta að á bæjarhátíðinni, sem mun standa alla helgina, verða meðal annars markaðir, brenna, brekkusöngur, kjúklingaveisla og vegleg flugeldasýning. Hápunktur helgarinnar verður þó án efa ballið í Hlégarði.
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira