Kjarnakljúfi lokað í Noregi 10. september 2006 07:15
Loka þurfti litlum kjarnakljúfi í Noregi aðfaranótt laugardags, þegar aðvörunarbjöllur fóru í gang vegna leka. Vart varð við aukna geislun í klefa sem kjarnakljúfurinn, sem notaður er til rannsókna, er í og slokknaði þá sjálfkrafa á honum. Í fréttatilkynningu sem Geislavarnir norska ríkisins sendu frá sér í gærdag segir að ekki hafi mælst geislun yfir viðmiðunarmörkum utan við klefann. Málið er í rannsókn og er talið líklegt að aukin geislun í klefanum hafi stafað af leka á kælivatni. Norsk stjórnvöld leggja bann við kjarnorkuverum og kjarnorkuvopnum á norskri grundu en þó eru tveir kjarnakljúfar reknir þar í rannsóknarskyni. Atvikið átti sér stað í kjarnakljúfi við norsku Orku- og tæknistofnunina í Kjeller við Lillehammer, um tuttugu kílómetrum norðaustur Ósló. Enginn var inni í salnum þegar bjöllurnar fóru í gang. „Það var aldrei nein hætta á ferðum,“ segir Atle Valseth, öryggisstjóri við stofnunina, við Expressen. Kjarnakljúfurinn, sem kallast JEEP II, var gangsettur árið 1966 og er knúinn af auðguðu úrani. Er hann notaður til rannsókna í eðlisfræði og læknisfræði.
Erlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira