Af útlokun og innilokun 12. ágúst 2006 06:00 Sviðslistahópurinn E.l.a frumsýnir á Art fart Friðgeir Einarsson og Karl Ágúst Þorbergsson rannsaka vægi leiklistar á Íslandi. MYND/Anton brink
Hvað má og hvað ekki í íslenskri leiklist? Hvaða vægi hefur hún í samfélaginu og er eitthvað til sem heitir góð eða vond leiklist? Þessar stóru spurningar eru á vörum tveggja leikhúsmanna sem vinna að rannsókn, tilraun og sýningu sem verður frumsýnd á sviðslistahátíðinni Art Fart í kvöld. Friðgeir Einarsson og Karl Ágúst Þorbergsson eru forsprakkar listahópsins E.L.A og aðstandendur rannsóknarinnar, sem hefur þegar borið ríkulegan ávöxt. „Við höfum staðið fyrir vinnustofum í sumar þar sem listamenn og listnemar hafa tekið þátt og saman höfum við prófað okkur áfram með leiklistarformið,“ segir Friðgeir, „við höfum gert tilraunir með spuna, leiktækni og aðrar listgreinar og miðla.“ Afraksturinn er meðal annars fólginn í sýningunni „Lebanon is a good place for rebirth“ sem verður frumsýnd kl. 20 í kvöld. „Verkið er nokkurs konar tilraun en það fjallar um þrjá einstaklinga sem verða innlyksa á hótelbar þegar styrjöld brýst út í Beirút í Líbanon. Gestirnir fara að spyrja sig tilvistarlegra spurninga og síðan leysist barinn upp og þau lenda í fleiri ævintýrum,“ segir Friðgeir en vill samt lítið láta uppi með framvindu verksins enda myndi það ef til vill spilla fyrir upplifun áhorfenda og eins er atburðarásin nokkuð flókin. „Verkið tekur óvænta stefnu og persónurnar reyna að fóta sig í síbreytilegum veruleika þess,“ segir Friðgeir og þar við situr. Leikritið er tilraunakennt en aðstandendurnir útskýra að það sé þó „með léttu ívafi“ og þó það sé illflokkanlegt segir Friðgeir að verkið sé máski lengst frá því að vera stimplað hádramatískt. „Við erum bæði að reyna að fóta okkur á eigin braut í forminu og jafnframt að reyna að laga formið að þeim hugmyndum sem við viljum koma á framfæri. Við þátttakendurnir höfum lagt stund á ýmis mannvísindi í háskólum og við höfum notað okkur það í vinnuferlinu og reynum að gera þau aðgengileg fyrir leikhúsgesti,“ segir hann. Rannsóknin, sem unnin er með stuðningi Nýsköpunarsjóðs, heldur áfram en sýningarnar eru fyrirhugaðar nú um helgina og þá næstu. Á Menningarnótt, hinn 19. ágúst, verður opin sýning eða innsetning á vinnuferli verksins og rannsóknarinnar í húsi Ó. Jónssons & Kaaber þar sem gestir geta kynnt sér aðstæður og hugmyndafræði verkefnisins.
Menning Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Fleiri fréttir Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Sjá meira