Veiða án rannsókna og án stjórnar 6. september 2006 15:30 Erlendur togari að ólöglegum karfaveiðum á Reykjaneshrygg. MYND/Landhelgisgæslan
Íslendingar eru í fyrsta skipti að halda á karfaveiðar á alþjóðlega hafsvæðinu í Síldarsmugunni. Sérfræðingar hjá Hafrannsóknastofnun segja stórhættulegt að verið sé að veiða úr stofni sem ekkert sé vitað um, án þess að veiðunum sé stjórnað. Íslendingar hafa aldrei veitt markvisst úr karfastofninum sem finnst í síldarsmugunni fyrr en nú en það hafa meðal annars Færeyingar gert. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjasviðs hjá Hafrannsóknarstofnuninni, segir að ekki sé vitað hvaðan karfinn í síldarsmugunni kemur, hvort hann kemur úr stofninum sem Íslendingar veiða á Reykjaneshrygg, norska stofninum í Barentshafi eða hvort þetta er algjörlega stakur stofn sem ekki hefur verið kannaður. Þau skip sem nú eru að veiðum í síldarsmugunni munu safna rannsóknarsýnum til þess að hægt sé að komast að því hvaða stofni karfinn tilheyrir. Hafrannsóknastofnun varaði sérstaklega við því í vor að ástand úthafskarfastofnsins á Reykjaneshrygg sé með versta móti og að grípa þyrfti til róttækrar veiðistjórnunar ef ætti að kippa því í liðinn. Þorsteinn bendir á að það sé ávallt góð regla að rannsaka fyrst og veiða svo, hvaðan sem fiskurinn kemur. Ef þetta er stakur stofn í Síldarsmugunni er auðvelt að skaða hann með því að byrja allt í einu að veiða hann á fullu og eftirlitslaust. Ef um er að ræða stofninn sem Íslendingar og aðrir hafa veitt á Reykjaneshrygg eða norska stofninn í Barentshafinu séu þeim mun meiri ástæða til að fara varlega, því að báðir stofnarnir séu í besta fallir fullnýttir og jafnvel ofnýttir. Hann bendir einnig á hættuna af sjóræningjaveiðum, sem erfitt sé að berjast gegn þar sem svæðið sé alþjóðlegt hafsvæði. Þeir togarar sem hafi verið að veiðum á Reykjaneshryggnum í óþökk Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins geti farið í Síldarsmuguna án þess að vera þar í óþökk neins því þarna sé engin virk fiskveiðistjórnun á karfa að því er hann best viti.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Deildarstjóri í Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira