Gafst upp á kuldanum á Íslandi og fann paradís á jörðu 16. nóvember 2006 10:30 Monika og kærastinn hennar Hér sést Monika ásamt kærasta sínum, Juvini Mann, sem vinnur við að stýra bátnum þar sem hún kennir köfun. „
Mér leiddist á Íslandi enda er hér kalt og dimmt meirihluta árs," segir hin 23 ára Monika Klonowski. Erfitt er annað en að vera sammála henni í kuldakastinu sem ríður yfir landið þessa dagana. Monika er nýkomin heim eftir að hafa verið í tæp tvö ár á eyjunni Roatan í Karíbahafinu þar sem hún vinnur sem köfunarkennari. „Þetta var nú ekki planið til að byrja með. Ég fór sem skiptinemi til Kosta Ríka í tvö ár þar sem við heimsóttum þessa eyju. Þetta er fallegasti staður sem ég hef farið á, hvítar strendur og grænblár sjór," segir Monika en eftir að hún kláraði spænskunám sitt í Kosta Ríka átti hún tvo mánuði aflögu áður en farmiði hennar til Íslands tók gildi. „Þannig að ég skellti mér bara í köfunarnám á Roatan sem er ódýrasti staður í heimi til að kafa á." Eftir það var Monika komin með kafarabakteríuna, hún henti flugmiða sínum til Íslands og ákvað að setjast að í Karíbahafinu. Hún er komin hingað heim núna en ætlar að flytja alfarið út eftir áramót enda komin með innfæddan upp á arminn og því verður ekki aftur snúið. Það sem heillaði Moniku við þessa eyju voru ekki bara hvítu strendurnar, sjórinn og veðrið sem ávallt er gott heldur líka það að þar er svo ódýrt að lifa. „Ég leigi hús við ströndina á rúmar 17.000 íslenskar krónur á mánuði sem er með rafmagni og hita," segir Monika en húsið hennar er lítið einbýlishús. Margt hefur á daga Moniku drifið síðan hún byrjaði að búa á eyjunni og varð hún meðal annars fyrir þeirri ólukku að fá malaríu. „Ég hélt að ég væri að deyja, Þetta er það versta sem ég upplifað," segir Monika en fjölskylda og vinir voru áhyggjufullir á Íslandi þar sem Monika leyfir þeim að fylgjast með sér gegnum bloggsíðu sína þar sem símasamband er ekki upp á marga fiska á eyjunni. ,„Ég gat ekki bloggað í viku og foreldrar mínir því orðnir frekar áhyggjufullir." Monika er pólsk að uppruna en er eini meðlimur fjölskyldu sinnar sem er fæddur á Íslandi. Fjölskyldan hennar var með fyrstu pólsku innflytjendum á Íslandi. „Ég er mjög ánægð þarna úti og tel mig hafa fundið mína paradís á jörðu. Lífið er svo rólegt og þægilegt þar, ekki svona mikið stress eins og hér á Íslandi," segir þessi ungi ferðalangur að lokum.
Menning Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira