Reyna á þolmörk Vesturlanda 3. nóvember 2006 03:45
Íran Teiknimyndahöfundur frá Marokkó, Abdollah Derkaoui að nafni, bar sigur úr býtum í teiknimyndasamkeppni sem efnt var til í Íran nú í sumar. Frá úrslitunum var skýrt í gær, en viðfangsefni keppninnar var helförin. „Hvar liggja mörk vestræns tjáningarfrelsis?" var yfirskrift keppninnar, en þema hennar var önnur spurning: „Hvers vegna skyldu Palestínumenn gjalda fyrir söguna af helförinni?" Myndir í keppnina bárust frá fjölmörgum löndum, þar á meðal Bandaríkjunum, Ítalíu, Frakklandi og Brasilíu. Margar af myndunum sýna gyðinga misnota hörmungarsögu helfararinnar til þess að kúga Palestínumenn, jafnvel með sambærilegum hætti og þýskir nasistar böðluðust á gyðingum á sínum tíma. Mörgum þykir með því harla lítið gert úr alvöru helfararinnar, ekki síst í ljósi þess að ráðamenn í Íran hafa áður látið í ljósi efasemdir sínar um að helförin hafi nokkru sinni átt sér stað. „Írönsk stjórnvöld hafa því miður gengið til liðs við hinn klámfengna kór afneitara helfararinnar," hafði til dæmis AP-fréttastofan eftir Mark Regev, talsmanni utanríkisráðuneytisins í Ísrael. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti einnig yfir óánægju sinni með samkeppnina þegar hann var á ferð í Íran nú í september.
Erlent Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Sjá meira