Lífið

Af útlokun og innilokun

Sviðslistahópurinn E.l.a frumsýnir á Art fart Friðgeir Einarsson og Karl Ágúst Þorbergsson rannsaka vægi leiklistar á Íslandi.
Sviðslistahópurinn E.l.a frumsýnir á Art fart Friðgeir Einarsson og Karl Ágúst Þorbergsson rannsaka vægi leiklistar á Íslandi. MYND/Anton brink

Hvað má og hvað ekki í íslenskri leiklist? Hvaða vægi hefur hún í samfélaginu og er eitthvað til sem heitir góð eða vond leiklist?

Þessar stóru spurningar eru á vörum tveggja leikhúsmanna sem vinna að rannsókn, tilraun og sýningu sem verður frumsýnd á sviðs­listahátíðinni Art Fart í kvöld. Friðgeir Einarsson og Karl Ágúst Þorbergsson eru forsprakkar listahópsins E.L.A og aðstandendur rannsóknarinnar, sem hefur þegar borið ríkulegan ávöxt.

„Við höfum staðið fyrir vinnustofum í sumar þar sem listamenn og listnemar hafa tekið þátt og saman höfum við prófað okkur áfram með leiklistarformið,“ segir Friðgeir, „við höfum gert tilraunir með spuna, leiktækni og aðrar listgreinar og miðla.“ Afraksturinn er meðal annars fólginn í sýningunni „Lebanon is a good place for rebirth“ sem verður frumsýnd kl. 20 í kvöld. „Verkið er nokkurs konar tilraun en það fjallar um þrjá einstaklinga sem verða innlyksa á hótel­bar þegar styrjöld brýst út í Beirút í Líbanon. Gestirnir fara að spyrja sig tilvistarlegra spurninga og síðan leysist barinn upp og þau lenda í fleiri ævintýrum,“ segir Friðgeir en vill samt lítið láta uppi með framvindu verksins enda myndi það ef til vill spilla fyrir upplifun áhorfenda og eins er atburðarásin nokkuð flókin. „Verkið tekur óvænta stefnu og persónurnar reyna að fóta sig í síbreytilegum veruleika þess,“ segir Friðgeir og þar við situr.

Leikritið er tilraunakennt en aðstandendurnir útskýra að það sé þó „með léttu ívafi“ og þó það sé illflokkanlegt segir Friðgeir að verkið sé máski lengst frá því að vera stimplað hádramatískt. „Við erum bæði að reyna að fóta okkur á eigin braut í forminu og jafnframt að reyna að laga formið að þeim hugmyndum sem við viljum koma á framfæri. Við þátttakendurnir höfum lagt stund á ýmis mannvísindi í háskólum og við höfum notað okkur það í vinnuferlinu og reynum að gera þau aðgengileg fyrir leikhúsgesti,“ segir hann.

Rannsóknin, sem unnin er með stuðningi Nýsköpunarsjóðs, heldur áfram en sýningarnar eru fyrirhugaðar nú um helgina og þá næstu. Á Menningarnótt, hinn 19. ágúst, verður opin sýning eða innsetning á vinnuferli verksins og rannsóknarinnar í húsi Ó. Jónssons & Kaaber þar sem gestir geta kynnt sér aðstæður og hugmyndafræði verkefnisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.