Lífið

Fá að hitta Suri

Strangar reglur fylgja því að heimsækja nýfædda dóttur Tom Cruise en hefur hann nú boðið Beckham hjónunum í heimsókn
Strangar reglur fylgja því að heimsækja nýfædda dóttur Tom Cruise en hefur hann nú boðið Beckham hjónunum í heimsókn

Hjónakornin Victoria og David Beckham eru í sjöunda himni eftir að hafa fengið boð frá leikaranum Tom Cruise um að hitta nýfædda dóttur hans, Suri.

Stúlkan sú er orðin fjögurra mánaða gömul og hefur einungis fáum útvöldum verið boðið að berja barnið augum. Ástæður þessa eru strangar reglur Vísindakirkjunnar um barna­umgegni, en eins og kunnugt er fylgja Tom Cruise og konan hans, Katie Holmes, reglunum út í ystu æsar.

Beckham-hjónunum eru þó settar strangar reglur um hvernig þau megi haga sér í kringum barnið og segja heimildarmenn sem þekkja til hjónanna að þeim hafi brugðið við þegar skilmálarnir voru kynntir fyrir þeim. Þau mega ekki taka með sér nein tæki til myndatöku, þau mega ekki snerta Suri og alls ekki kjá framan í hana eða tala við hana barnamál.

Herma fréttir að Victoria kvíði sérstaklega fyrir síðastnefndu skilyrði, enda er hún mikil barnakona og að renna fyrir fjórða barninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.