Lífið

Er Brecht úr móð?

Leikskáldið Berthold Brecht er
frægur en lítið lesinn í Þýskalandi.
Leikskáldið Berthold Brecht er frægur en lítið lesinn í Þýskalandi.

Margt bendir til þess að þýski rithöfundurinn og leikskáldið Berthold Brecht eigi lítið upp á pallborðið hjá lesendum í heimalandi hans Þýskalandi en í næstu viku verða fimmtíu ár liðin frá dauða þessa umdeilda manns.

Í þýska tímaritinu bücher birtist nýlega könnun á lestri verka hans sem benti til þess að aðeins þrjú prósent þeirra þúsund lesenda sem spurðir voru hefðu lesið staf í verkum Brechts á undanförnum árum en heil 42 prósent hefðu annað hvort ekki lesið neitt eftir Brecht eða minntust þess ekki að hafa lesið verk hans. Átta prósent aðspurðra vissu þó að Brecht stofnaði eitt þekkasta leikhús Berlinarborgar, Berliner Ensemble.

Ýmiskonar uppákomur eru skipulagðar á meginlandinu til að minnast þessara tímamóta. Spurningin er bara hverjir mæta þá til að minnast skáldsins?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.