Ingólfur á krossgötum 9. ágúst 2006 16:00 Ingólfur Hannesson Hefur búið og starfað í Sviss síðustu þrjú árin. Samningur hans við EBU er að renna út en honum bjóðast ýmis tækifæri erlendis.
Það hefur lítið farið fyrir Ingólfi Hannessyni síðustu þrjú árin. Eftir að hafa starfað sem íþróttastjóri Ríkissjónvarpsins ákvað hann að söðla um og hefur búið í Sviss og starfað hjá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva. Þar hefur hann fengist við samningsgerð og undirbúning fyrir mót í innanhúss- og vetraríþróttum. Um næstu mánaðarmót rennur út þriggja ára starfssamningur Ingólfs hjá EBU og hann stendur því á krossgötum um þessar mundir. „Um mánaðarmótin lýkur líka þriggja ára launalausu leyfi mínu hjá Ríkisútvarpinu og ég er þessa dagana að gera upp við mig hvað tekur við,“ segir Ingólfur sem hefur dvalist á Íslandi að undanförnu. „Mér hefur verið boðið fast starf úti hjá EBU og í því felst bæði stöðuhækkun og starfstitilsbreyting,“ segir Ingólfur sem býst við að taka ákvörðun um framtíðina í lok vikunnar. Honum hafa auk þessa verið gerð fleiri starfstilboð erlendis og á því síður von á því að taka aftur við fyrri stöðu hjá RÚV. „Sú staða er líka ágætlega mönnuð af mínum góða félaga Samúel Erni Erlingssyni. Hann hefur staðið sig með mikilli prýði.” Aðspurður segir Ingólfur umrætt starfstilboð hjá EBU vera mjög áhugavert, það sé í raun algert draumastarf á þessum vettvangi. Taki Ingólfur við starfinu mun hann hafa umsjón með átta alþjóðlegum samtökum og stýra samningsgerð upp á nokkra milljarða. Hann viðurkennir þó að starfið í Sviss bitni vissulega á fjölskyldulífinu. „Ég er nú þannig settur að konan mín er að kenna á Íslandi í vetur, sonur minn er í Háskólanum og dóttir mín er í Danmörku að klára læknisfræði. Þetta er sem sagt Sviss, Ísland og Danmörk. Svo er bara reynt að sameina þetta einhvern veginn. Reynslan hefur nú samt sýnt mér að hamingjan felst ekki í flugferðum,“ segir Ingólfur Hannesson.
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Sjá meira