Alþýðuleg stjörnuleikkona vekur hrifningu 9. ágúst 2006 15:30 Búðir Blanchett kom þar við á meðan hún dvaldist á Snæfellsnesi og keypti íslenska stóla.
Stórleikkonan Cate Blanchett er stödd hér á landi ásamt eiginmanni sínum, Andrew Upton, og tveimur sonum þeirra. Hún er jafn falleg og í kvikmyndunum, sagði heimildamaður blaðsins á Búðum. Blanchett lét lítið fyrir sér fara og var mörgum ekki ljóst að þarna væri á ferð heimsfræg kvikmyndastjarna en rólegt var á Búðum um helgina enda áttu hvers kyns útihátíðir hug og hjörtu landsmanna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins keypti leikkonan nokkra stóla á Hótel Búðum eftir listamanninn Sigga á Risi en þeir eru þrífóta með lambakskini. Leikkonan naut í gær lífsins á Snæfellsnesi og var væntanleg aftur á Búðir í kvöldverð. Blanchett fór á Innipúkann síðastliðið sunnudagskvöld og sá þar rjómann úr íslensku tónlistarlífi, meðal annars Mugison og Ghostigital. Samkvæmt heimildarmanni blaðsins mætti Blanchett snemma og hafði fest kaup á miða áður. Nærvera hennar fór ekki framhjá neinum á Nasa en leikkonan krafðist engrar sérmeðferðar og þakkaði kærlega vel fyrir sig á leiðinni út. Blanchett snæddi einnig kvöldverð á veitingastaðnum Við Tjörnina, þjónunum þar til mikillar gleði. Fæstir þeirra sem snæddu á staðnum könnuðust við leikkonuna en einn þjónanna var aðdáandi leikkonunnar og hoppaði hæð sína af kæti að sögn viðstaddra. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ekki óalgent að hinir ríku og frægu leggi leið sína á þennan veitingastað á Templarasundi þannig að veitingafólkið er öllu vant. Reyndar var ekkert borð laust fyrir Blanchett en leikkonunni þótti ekki mikið tiltökumál að bíða eftir að röðin kæmi að sér og var hún mjög sátt með máltíðina. Blanchett er einhver virtasta leikkona Hollywood um þessar mundir enda hlaut hún Óskarsverðlaunin fyrir túlkun sína á Katharine Hepburn í The Aviator. Hún leikur meðal annars stórt hlutverk í nýjustu mynd Steven Soderbergh, The Good German, þar sem George Clooney er í aðalhlutverki og þá hefur verið tilkynnt um kvikmyndina The Curious Case of Benjamin Button en þar mun hún leikur hún á móti sjálfum Brad Pitt en leikstjóri er David Fincher.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira