Lífið

Deilur um pólitík

Thom Yorke Pólitískur að vanda, en virðist ekki þora að standa við orð sín.
Fréttablaðið/GettyImages
Thom Yorke Pólitískur að vanda, en virðist ekki þora að standa við orð sín. Fréttablaðið/GettyImages
Miklar umræður eru nú meðal aðdáenda hljómsveitarinnar Radio­head um pólitískar skoð­anir söngvarans Thom Yorke. Söngvarinn setti færslu inn á heimasíðu sveitarinnar þar sem hann krafðist afsagnar breska forsætisráðherrans Tony Blair. Yorke skrifaði að sér þætti nóg komið af samstöðu Blairs með George Bush, nú þegar þriðja heimsstyrjöldin virtist vera að brjótast út. Færslan var hins vegar tekin út af heimasíðu Radio­head og engar skýringar hafa fengist á því. Sumir vilja meina að Yorke hafi verið beittur þrýstingi af stjórnvöldum, en aðrir telja að hann hafi lesið yfir eigin skrif og einfaldlega snúist hugur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.