Stærsta grill landsins á flakki 23. júlí 2006 10:00 Grillið góða Það má metta marga munna með heilum skrokk af nauti.
Stórtækir grillarar hugsa sér sjálfsagt gott til glóðarinnar í orðsins fyllstu merkingu þegar þeir sjá stærsta grill landsins, sem er í eigu Landssambands kúabænda en á því er hægt að grilla heilan skrokk af nauti. "Grillið er búið að flakka um landið í sumar, meðal annars á Hólahátíð," segir Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, en samtökin lána grillið gegn vægu gjaldi. "Það kostar reyndar djöfuldóm að flytja það á milli staða og ekki gert nema með flutningabíl, en við höfum haft þann háttinn á að þeir sem leigja það þurfa aðeins að greiða fyrir að koma því á staðinn. Við tökum ekkert aukalega fyrir." Það gefur augaleið að heill skrokkur af nauti mettar marga munna. "Að minnsta kosti 500 manns myndi ég telja," segir Baldur. "Vænn skrokkur er 250 kíló á þyngd, þar af helmingurinn kjöt. Þetta hentar því vel á bætjarhátíðir og allar fjölmennar samkomur. Við grilluðum meðal annars á menningarnótt um árið." Það kostar hins vegar mikinn undirbúning en þeir sem láta sig hafa það verða víst ekki sviknir. "Við lánuðum grillið austur á Hérað um daginn og mér skilst að þeir hafi verið átján tíma að grilla skrokkinn. Þar áður þurfti hann að hanga í nokkra daga. En fólkið lét afskaplega vel af kjötinu og fannst það virkilega gott," segir Baldur sem sjálfur hefur reyndar ekki smakkað kjöt beint af skrokknum. Þeir sem ætla að halda stóra veislu vilja ekki að neinn kveðji svangur geta haft samband við Landssamband kúabænda og spurt um grillið. "Ég mæli hins vegar ekki með að menn grilli pulsur á því," segir Baldur og hlær. "Þær færu að brosa býsna fljótt."
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira