Lífið

Craig aftur Bond

Daniel Craig Þykir svo góður í hlutverki James Bond að hann hefur verið fenginn til að leika hann í annað sinn.
Daniel Craig Þykir svo góður í hlutverki James Bond að hann hefur verið fenginn til að leika hann í annað sinn. MYND/Reuters
Leikarinn Daniel Craig hefur skrifað undir samning þess efnis að leika njósnarann fræga James Bond í annað sinn. Bond-myndin Casino Royale, þar sem Craig þreytir frumraun sína sem njósnari hennar hátignar, hefur ekki enn verið frumsýnd en Barbara Broccoli, framleiðandi myndanna, hreifst svo af tilburðum Craigs við tökurnar að hún samdi við hann á nýjan leik. Hún segir Craig endurspegla dekkri og töffaralegri hlið á Bond sem aðrir leikarar hafi ekki náð. Casino Royale verður frumsýnd í november á þessu ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.