Innlent

Framúrskarandi og til fyrirmyndar

Menntaráð REykjavíkurborgar verðlaunaði Grunnskólanemendur Hátíðleg stemning ríkti í ráðhúsinu á þjóðhátíðardaginn. Fjölþjóðlegur kór Austurbæjarskóla tróð upp á verðlaunaafhendingunni undir stjórn Péturs Hafþórs Jónssonar tónmenntakennara.
Menntaráð REykjavíkurborgar verðlaunaði Grunnskólanemendur Hátíðleg stemning ríkti í ráðhúsinu á þjóðhátíðardaginn. Fjölþjóðlegur kór Austurbæjarskóla tróð upp á verðlaunaafhendingunni undir stjórn Péturs Hafþórs Jónssonar tónmenntakennara.

Nemendaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar voru afhent í fjórða sinn í Ráðhúsinu í gær. Liðlega fjörutíu nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur voru verðlaunaðir, meðal annars fyrir góðan námsárangur, framfarir í námi, félagsstörf, samskiptahæfni, frumkvæði, leiðtogahæfileika og frammistöðu í íþróttum og listum. Mikið var um dýrðir í Ráðhúsinu þar sem saman voru komnir stoltir nemendur, foreldrar og aðrir aðstandendur sem glöddust saman af þessu hátíðlega tilefni.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, afhentu verðlaunahöfunum bókagjöf og viðurkenningarskjal. "Þessir nemendur sem hér voru heiðraðir fá verðlaun af mjög ólíkum ástæðum," segir Júlíus Vífill. "Hér voru veitt verðlaun til þeirra sem skarað hafa fram úr, til dæmis í félagsfærni eða í námi en líka þeim sem hafa skarað fram úr af persónulegum ástæðum. Í hópnum eru til dæmis nemendur sem eiga við fötlun að stríða."

Hver grunnskóli tilnefndi einn nemanda en jafnan er hvatt til þess að starfsmenn skóla, foreldrafélög og foreldra- og nemendaráð tilnefni fulltrúa síns skóla til verðlaunanna. "Þessi verðlaun eru mjög mikilvæg fyrir þá sem þau hljóta og líka mikilvæg fyrir samnemendur þeirra því við erum að benda á fyrirmyndir. Þetta er hvatning fyrir alla skólafélaga til þess að standa sig vel á ýmsum sviðum. Hér er ekki verið að taka út þá sem hljóta hæstu einkunnirnar heldur leitað að þeim sem hafa skarað fram úr, jafnvel af mjög mannlegum ástæðum," útskýrir Júlíus Vífill sem nýtekinn er við formennsku í menntaráði borgarinnar. "Það er mjög skemmtileg byrjun á starfinu, þessi verðlaun eru mjög jákvæður hlutur og ég er sjálfur mjög ánægður með að fá að starfa að þessum mikilvæga málaflokki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×