Framúrskarandi og til fyrirmyndar 19. júní 2006 05:45 Menntaráð REykjavíkurborgar verðlaunaði Grunnskólanemendur Hátíðleg stemning ríkti í ráðhúsinu á þjóðhátíðardaginn. Fjölþjóðlegur kór Austurbæjarskóla tróð upp á verðlaunaafhendingunni undir stjórn Péturs Hafþórs Jónssonar tónmenntakennara.
Nemendaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar voru afhent í fjórða sinn í Ráðhúsinu í gær. Liðlega fjörutíu nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur voru verðlaunaðir, meðal annars fyrir góðan námsárangur, framfarir í námi, félagsstörf, samskiptahæfni, frumkvæði, leiðtogahæfileika og frammistöðu í íþróttum og listum. Mikið var um dýrðir í Ráðhúsinu þar sem saman voru komnir stoltir nemendur, foreldrar og aðrir aðstandendur sem glöddust saman af þessu hátíðlega tilefni. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, afhentu verðlaunahöfunum bókagjöf og viðurkenningarskjal. "Þessir nemendur sem hér voru heiðraðir fá verðlaun af mjög ólíkum ástæðum," segir Júlíus Vífill. "Hér voru veitt verðlaun til þeirra sem skarað hafa fram úr, til dæmis í félagsfærni eða í námi en líka þeim sem hafa skarað fram úr af persónulegum ástæðum. Í hópnum eru til dæmis nemendur sem eiga við fötlun að stríða." Hver grunnskóli tilnefndi einn nemanda en jafnan er hvatt til þess að starfsmenn skóla, foreldrafélög og foreldra- og nemendaráð tilnefni fulltrúa síns skóla til verðlaunanna. "Þessi verðlaun eru mjög mikilvæg fyrir þá sem þau hljóta og líka mikilvæg fyrir samnemendur þeirra því við erum að benda á fyrirmyndir. Þetta er hvatning fyrir alla skólafélaga til þess að standa sig vel á ýmsum sviðum. Hér er ekki verið að taka út þá sem hljóta hæstu einkunnirnar heldur leitað að þeim sem hafa skarað fram úr, jafnvel af mjög mannlegum ástæðum," útskýrir Júlíus Vífill sem nýtekinn er við formennsku í menntaráði borgarinnar. "Það er mjög skemmtileg byrjun á starfinu, þessi verðlaun eru mjög jákvæður hlutur og ég er sjálfur mjög ánægður með að fá að starfa að þessum mikilvæga málaflokki."
Innlent Mest lesið Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Innlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Erlent Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran Erlent Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Innlent Fleiri fréttir Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Hrósaði meirihlutanum og sendi þeim gamla pillu Árásir á Íran og átök á Alþingi Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Sjá meira