Lífið

Banderas í dansstuði

take the lead Antonio Banderas fer með aðalhlutverkið í Take the Lead.
take the lead Antonio Banderas fer með aðalhlutverkið í Take the Lead.

Í kvikmyndinni Take the Lead fer hjartaknúsarinn Antonio Banderas með hlutverk dansara sem tekur að sér að kenna vandræða­unglingum réttu sporin.

Fyrst um sinn fær hann kaldar móttökur en smám saman vinnur hann sig í áliti hjá unglingunum. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum og með hitt aðalhlutverkið fer Alfre Woodard. Leikstjóri er Liz Friedlander og er þetta fyrsta kvikmynd hennar. Hefur hún áður leikstýrt hinum ýmsu myndböndum og tónlistarmyndum. Myndin er frumsýnd í Laugarásbíói á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.