Lífið

Ætlar að slá heimsmet

roger field Englendingurinn Roger Field hefur birst í hinum ýmsu blöðum og tímaritum.
roger field Englendingurinn Roger Field hefur birst í hinum ýmsu blöðum og tímaritum.

Englendingurinn Roger Field stefnir að því að verða sú persóna sem fær mesta umfjöllun í dagblöðum og tímaritum víðsvegar um heim.

Roger fékk hugmyndina eftir að hann hitti Arnold Schwarzenegger árið 1968 í Munchen áður en hann fluttist til Bandaríkjanna og sló í gegn sem kvikmyndastjarna.

Roger var fenginn til að kenna Arnold ensku áður en hann myndi flytja vestur um haf en á þessum tíma var kraftakarlinn sannfærður um að hann myndi slá í gegn í Hollywood. Hann hafði þegar verið krýndur Herra alheimur og var því með sjálfstraustið í lagi.

Eitt sinn sagði Arnold við Roger í léttum dúr að það yrði aldrei neitt úr honum. Roger ákvað að afsanna þá kenningu með því að hafa samband við fjölmiðla út um allan heim og breiða út sögu sína.

Nú þegar hefur Roger, sem starfar sem uppfinningamaður, birst í blöðum, tímaritum og bókum frá 827 útgefendum í yfir fimmtíu löndum. Meðal annars hefur verið skrifað um hann í Express-blaðinu í Aþenu og Playboy í Ungverjalandi. Fréttablaðið bætist nú í þann hóp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.