Ringlulreið í Rómaborg 6. apríl 2005 00:01
Algjör ringulreið ríkir í Rómaborg vegna mannfjöldans sem streymir til borgarinnar til að votta páfa sína hinstu virðingu. Öngþveiti er í umferðinni, hótel í 200 kílómetra radíus eru uppbókuð og fólk örmagnast í hundraðatali í biðröðinni fyrir utan Péturskirkjuna. Það skiptir engu þótt yfirvöld hafi reynt með öllum ráðum að draga úr áhuga manna, vara við umferðartöfunum, biðröðunum og húsnæðisleysi, fólk streymir til Rómaborgar hvaðanæva úr heiminum og lætur sig hafa það að standa í biðröð í allt að fimmtán klukkustundir, í fimbulkulda á nóttunni og steikjandi hita yfir daginn, til þess að sjá líkið af páfa í tæplega mínútu. Biðröðin fyrir utan Péturskirkjuna er nú tveir kílómetrar á lengd og lengist stöðugt, sérstaklega eftir að það fréttist að enginn fær að bætast í hana eftir klukkan átta í kvöld. Þeir sem ná í röðina fyrir þann tíma fá að fara inn en eftir það hefst undirbúningur jarðarfararinnar á föstudagsmorgun. Mörgum götum borgarinnar hefur verið lokað fyrir umferð vegna mannfjöldans og í hinum stendur allt fast. Almenningssamgöngur eru að sprengja allt utan af sér og á morgun og föstudag verður bannað að fljúga yfir borgina af öryggisástæðum. Þá verður öll umferð bíla bönnuð í Róm á föstudaginn. Engin hótel er að fá fyrir allan þennan mannfjölda og öll gistirými í nágrenninu eru uppbókuð. Yfirvöld hafa brugðið á það ráð að breyta sýningasölum í gistiheimili og setja upp nokkurs konar tjaldborgir í útjaðri borgarinnar fyrir fólk sem á í engin hús að venda. Það ætti þó ekki að væsa um fyrirmennin, þjóðar- og trúarleiðtogana sem flykkjast til Rómar á morgun fyrir jarðarförina, þeirra á meðal Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Vatíkanið hafði gert ráðstafanir og pantað hótel fyrir þetta fólk um leið og ljóst var í hvað stefndi. Það er kannski eins gott því búist er við fjórum konungum, fimm drottningum og að minnsta kosti 70 forsetum.
Erlent Fréttir Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Fleiri fréttir Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu Sjá meira