Erlent

Óttast óöld á Sri Lanka

Neyðarlög hafa tekið gildi á Sri Lanka, eftir að utanríkisráðherra landsins var skotinn til bana í gærkvöldi. Allt er þó með kyrrum kjörum í höfuðborginni að sögn íslensks starfsmanns Alþjóða rauða krossins þar. Óttast er að morðið verði til þess að þriggja ára vopnahlé milli Tamíltígra og yfirvalda rofni. Lakshmar Kadirgamar, utanríkisráðherra, var skotinn til bana, líklega af leyniskyttu, við heimili sitt í höfuðborginni Colombo í gærkvöldi. Kadirgamar var sjálfur Tamíli, en var samt einn harðasti andstæðingur hreyfingar Tamíltígranna, sem börðust áratugum saman fyrir eigin ríki á norðurhluta eyjunnar með hryðjuverkum og skæruhernaði. Samið var um vopnahlé árið 2002, sem hefur að mestu haldið. Lögreglan hefur ásakað hreyfingu Tamíltígra um að bera ábyrgð á morðinu, en forsvarsmenn hennar neita því alfarið að hafa haft nokkuð með það að gera. Með neyðarlögunum geta yfirvöld á Sri Lanka sent hersveitir hvert sem er, þau geta haldið þeim sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum án ákæru og gert húsleitir og jafnvel jafnað byggingar við jörðu, án sérstaks leyfis. Sólveig Ólafsdóttir starfar á Sri Lanka sem upplýsingafulltrúi hjá Alþjóðaráði Rauða krossins og hún segir að ... Sólveig segir ýmis teikn hafa verið á lofti fyrir morðið um að vopnahléð væri orðið brothætt. Allir séu í viðbragðsstöðu, bæði her og alþjóðastofnanir. Sri Lanka varð illa úti í flóðbylgjunni á annan í jólum. Mikið uppbyggingarstarf fer þar fram núna og nú virðist sem menn haldi einfaldlega niðri í sér andanum og voni að ekki bresti á borgarastyrjöld að nýju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×