Erlent

Vinsældir Bush minnka

Fimmtíu og fimm prósent Bandaríkjamanna myndu kjósa Demókrata ef gengið yrði til kosinga nú. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Gallup, CNN og dagblaðsins USA Today.

Aðeins þrjátíu og níu prósent aðspurðra sögðust myndu kjósa George Bush ef hann væri í framboði. Í öllum málaflokkum nema baráttunni gegn hryðjuverkum sagðist fólk treysta Demókrötum betur en Repúblikönum. Önnur ný könnun, sem birtist í Wall street journal, bendir til að meirihluti Bandaríkjamanna sé nú á því að innrásin inn í Írak hafi verið misráðin. Nú hafa tvö þúsund Bandaríkjamenn látið lífið síðan innrásin hófst, meirihlutinn eftir búið var að steypa Saddam Hússein af stóli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×