500 hið minnsta látnir 22. febrúar 2005 00:01
Talið er að að minnsta kosti 500 manns hafi látið lífið í öflugum jarðskjálfta sem reið yfir miðhluta Írans í nótt. Fjöldi þorpa er rústir einar og um 30 þúsund manns hafa ekki í nokkur hús að venda. Skjálftinn mældist 6,4 á Richter og miðja hans var skammt frá Zarand-borg í Kerman-héraði, reyndar ekki langt frá borginni Bam sem jarðskjálfti lagði nánast í rúst fyrir aðeins rúmu ári. Þá létust rúmlega 31 þúsund manns. Talið er að skjálftinn í nótt hafi valdið tjóni í að minnsta kosti fjörutíu fjallaþorpum og bæjum, þar á meðal í þremur sem virðast nánast hafa jafnast við jörðu. Þá berast fregnir af því að í öðrum bæ þar sem um 1500 manns búa sé nánast ekkert hús enn uppistandandi. Mjög kalt er á þessu svæði núna og rigningar gætu haft áhrif á björgunaraðgerðir. Það bætir ekki úr skák að fólk er hvatt til að halda sig úti og sofa utandyra vegna hættunnar á eftirskjálftum en það gæti reynst mörgum erfitt í þeim vetrarkulda sem nú ríkir. Jákvæða hliðin á þessu veðurfari er hins vegar að vegna kuldanna voru björgunarsveitir landsins. þegar í startholunum. Stjórnvöld í Íran brugðust hratt við og sendu flugvélar á vettvang með hjálpargögn en enn sem komið er hefur ekki verið beðið um alþjóðlega aðstoð. Íran er það land í heiminum þar sem flestir jarðskjálftar verða, eða að meðaltali einn á hverjum degi. Ástæðan er að landið liggur á mótum þriggja jarðskorpufleka sem eru á stöðugri hreyfingu. MYND/APMYND/AP
Erlent Fréttir Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Sjá meira