Ganga nærri mannréttindum 23. febrúar 2005 00:01
Breska ríkisstjórnin sætir mikilli gagnrýni vegna fyrirhugaðrar löggjafar sem veitir lögreglu aukin völd til að handtaka og halda grunuðum hryðjuverkamönnum. Stjórnarandstæðingar segja löggjöfina grafa undan mannréttindum og breska réttarkerfinu auk þess sem þingmönnum gefist ekki tími til að ræða frumvarpið, sem feli í sér grundvallarbreytingar á bresku dómskerfi. Verði frumvarp stjórnarinnar að lögum getur lögregla haldið meintum hryðjuverkamönnum í stofufangelsi eða sett staðsetningartæki á þá án dómsúrskurðar. Stjórnin vill líka rétt til að lýsa yfir útgöngubanni eða ferðabanni og setja takmarkanir við notkun síma og netsins ef grunur leikur á að hryðjuverk kunni að verða framin. "Bretland stendur frammi fyrir alvarlegri ógn við öryggi almennings," sagði Tony Blair forsætisráðherra í breska þinginu. Hann sagði það mat stjórnvalda, lögreglu og öryggisstofnana að grípa þyrfti til aðgerða og veita lögreglu víðtækari heimildir í baráttunni gegn hryðjuverkum. Hann sagði líka að ekki yrði gengið nærri mannréttindum. Stjórnarandstæðingar eru á öðru máli og segja of langt gengið. Þeir gagnrýna ekki síst að aðeins gefist tveir dagar til að ræða mál sem þingmönnum gefist venjulega nokkrar vikur eða mánuðir til að skoða. Michael Howard, leiðtogi íhaldsmanna, sakaði Blair um hroka. "Hvers vegna heldur forsætisráðherra svona fast í að takmarka þann tíma sem gefst til að ræða þessar mikilvægu spurningar? Hvers vegna neitar hann að skilja að það eru aðrir valmöguleikar sem er vert að skoða? Hví er hann svo hrokafullur þegar kemur að þessum spurningum sem skipta sköpum um öryggi okkar og réttindi?" Með frumvarpinu er brugðist við úrskurði æðsta dómstóls Bretlands um að óheimilt sé að halda meintum hryðjuverkamönnum ótímabundið án dóms og laga. Því þarf að sleppa tíu mönnum en breska stjórnin vonast til að komast hjá því með nýrri löggjöf.
Erlent Fréttir Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Sjá meira