Við erum sterkari en Ungverjar 2. júní 2005 00:01
Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari segir að Ísland eigi að leggja Ungverjaland að velli á góðum degi. Hann segir að í versta falli þurfi liðið að fá fjögur stig úr næstu tveimur leikjum en krafan er sex stig. „Það er alveg ljóst að við þurfum að halda hreinu og sýna karakter í þessum leik. Hlutverk okkar er að ná upp góðri baráttu í liðið, þetta er leikur sem við þurfum að vinna." sagði Ásgeir Sigurvinsson eftir æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í gær. „Okkar besti leikur í riðlakeppninni til þessa var fyrri leikurinn gegn Ungverjalandi þar sem við töpuðum niður góðri stöðu. Þeir hafa gott lið en mitt mat er að þeir séu veikari en við núna, ég sá þá keppa á móti Frakklandi þar sem þeir áttu slakan fyrri hálfleik. Í hálfleik gerðu þeir fimm breytingar og tóku til að mynda sína reyndustu menn af velli, eins og Zoltan Gera og Imre Szabi. Komu síðan sterkir inn í seinni hálfleik og þar sást að þeir hafa ýmsa leikmenn sem má ekki vanmeta. Þeir hafa ágætis lið en á góðum degi eigum við að vinna þá." sagði Ásgeir í gær. Fyrri leikur þjóðanna í Ungverjalandi endaði með 3-2 sigri heimamanna. „Krafan er kannski sex stig úr næstu tveimur leikjum. Aðalatriðið fyrir mig er að liðið sýni góða baráttu og eigi góðan leik, að þessir ungu strákar nái að sýna sitt rétta andlit. Eiður Smári er kominn inn en Hermann getur ekki verið með, sem veikir vörnina verulega. Ég hef sagt það að í versta falli þurfum við fjögur stig úr þessum tveimur leikjum." sagði Ásgeir, en aðspurður sagðist hann ekki ætla að hætta þó þessi markmið myndu ekki nást. „Við erum samningsbundnir KSÍ út október þannig að við erum ekkert að hugsa út í það að hætta." Menn hafa verið að velta því fyrir sér hvort Eiður verði einn í fremstu víglínu í leiknum á laugardag eða jafnvel nær miðsvæðinu. „Eiður hefur verið að spila þarna fyrir aftan sóknarmennina með sínu félagsliði og gert það vel. Við prufuðum hann í þessa stöðu í Englandi en það gekk ekki nægilega vel, það er samt aldrei að vita nema við höfum hann þarna aðeins fyrir aftan fremstu menn." sagði Ásgeir. Þrír leikmenn sem leika hér heima eru í íslenska hópnum, þar á meðal Helgi Valur Daníelsson hjá Fylki. „Hann er að stimpla sig inn, mjög fjölhæfur strákur sem við höfum fylgst vel með í gegnum tíðina og við getum notað hann bæði í bakverðinum og á miðjunni," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu.
Íslenski boltinn Mest lesið Egyptaland - Ísland | Annar íslenskur sigur í Kaíró? Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Fleiri fréttir Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Egyptaland - Ísland | Annar íslenskur sigur í Kaíró? Besta sætið: Þreföld öryggisgæsla í Grindavík Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Venus verður sú elsta til að spila á Opna franska FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM „Við erum alltaf að gefa í“ Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Dagskráin í dag: Grindavík getur tryggt titilinn á heimavelli Kane sektaður en ekki settur í leikbann Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Óstöðvandi Sinner sló met Djokovic Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Sjá meira