Páfi liggur ekki banaleguna 25. febrúar 2005 00:01
Jóhannes Páll páfi liggur ekki banaleguna samkvæmt því sem talsmenn Páfagarðs segja. Hann var í gærdag fluttur á Gemelli-sjúkrahúsið í Róm í annað skipti á innan við mánuði. Skorið var á barka páfa í gærkvöldi og þrædd í hann slanga til að auðvelda honum öndun en óttast var að hann fengi annars lungnabólgu sem hefði reynst honum hættuleg. Opinber skýring sjúkrahússlegunnar er sú að páfi sé með flensu en það er þó að líkindum Parkinsonsveikin sem veldur því að páfi er jafn illa haldinn og raun ber vitni. Talið er að tuttugu ár séu síðan að sjúkdómurinn gerði fyrst vart við sig hjá páfa og nú er svo komið að vöðvahreyfingar eru margar hverjar mjög erfiðar, t.a.m. er að líkindum erfitt fyrir hann að kyngja og nánast vonlaust að hósta. Því safnast slím saman og getur valdið mun meiri vandræðum en hjá fólki sem annars er hraust. Auk þess segja fréttaskýrendur sem þekkja vel til í Páfagarði víst að því verði haldið fram að páfi sé einungis með flensu þangað til að yfirlýsing verði send út þess efnis að hann sé fallinn frá. Í ljósi þessa, og þess að yfirlýsingar talsmanna Páfagarðs eru stuttar, loðnar og langt á milli þeirra, er ekki furða að vangaveltur um heilsu páfa séu á kreiki. Pólskur prestur, sem þekkir Jóhannes Pál vel, segir hann hins vegar ekki liggja banaleguna og að fólki væri nær að venjast því að páfi væri fluttur á sjúkrahús með reglulegu millibili. Talsmaður Páfagarðs greindi nú skömmu fyrir fréttir frá því að páfi hefði vaknað í morgun hress eftir atvikum og borðað morgunmat. Hann andar nú án aðstoðar en í gærkvöldi var hann tengdur við öndunarvél eftir neyðaraðgerðina. Hann getur þó ekki talað og verður mállaus um hríð í kjölfar aðgerðarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Sækir aftur um reynslulausn Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Sjá meira