Framtíð kaþólsku kirkjunnar í húfi 25. febrúar 2005 00:01
Sögusagnir og getgátur tröllríða umræðunni um líðan Jóhannesar Páls páfa sem fluttur var á sjúkrahús í gær, rétt um hálfum mánuði eftir að hann kom þaðan. Framtíð kaþólsku kirkjunnar er sögð í húfi. Páfi var fluttur í skyndi á sjúkrahús í gær og gekkst undir neyðaraðgerð í gærkvöldi. Skorið var á barkann til að auðvelda öndun en óttast var að hann gæti að öðrum kosti fengið lungnabólgu. Talsmenn Páfagarðs segja hann einungis með flensu en að aðgerðin hafi gengið vel og að páfi sé eftir atvikum hress. Það eru líkur á að páfi verði með flensu þar til yfir líkur, að mati fréttaskýrenda sem þekkja til í Páfagarði. Þeir telja að því verði haldið fram að páfi sé einungis með flensu þangað til að yfirlýsing verði send út þess efnis að hann sé fallinn frá. Í ljósi þessa og upplýsingaþurrðar í Róm er ekki furða þó að vangaveltur um heilsu páfa og framtíð kaþólsku kirkjunnar séu á kreiki. John Wauck, sérfræðingur í málefnum Páfagarðs, segist telja að páfinn muni sitja áfram. Eini raunverulegi möguleikinn á að páfinn segi af sér sé alger vanhæfni, t.d. ef hann væri í dauðadái. En á meðan páfinn sé skýr í hugsun og geti tjáð sig verði hann áfram páfi. „Þegar allt kemur til alls lofa fordæmin fyrir afsögn páfans ekki góðu. Dante setti síðasta páfa sem sagði af sér í helvíti ásamt þeim sem tók við af honum,“ segir Wauck. Engu að síður er hermt að afsögn sé rædd meðal næstráðenda páfa, sem hafa töluverð áhrif á niðurstöðuna. Nýr páfi gæti ákveðið að skipta um menn í þeirri sveit svo að örlög þeirra sjálfra eru samtvinnuð örlögum Jóhannesar Páls. En þeir hafa líka áhrif á það, hver verður fyrir valinu þegar að því kemur. Annar sérfræðingur í málefnum Páfagarðs, Wilton Winn, segist sjá nokkra menn fyrir sér sem örlagavalda páfa: Sodano kardinála, forsætisráðherra Páfagarðs; Ratzinger kardinála, yfirmann kardinálaráðsins; Re kardinála, yfirmann biskuparáðsins og Ruini kardinála, sóknarprest Rómar sem stjórnar biskupsdæmi Rómar fyrir páfa.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira