Erlent

Óttast að stúlka hafi látist úr fuglaflensu í Kína

MYND/AP

Grunur leikur á að tólf ára stúlka hafi látist af völdum fuglaflensu í Mið-Kína, en hún bjó í þorpi þar sem fuglaflensa hefur greinst nýlega. Frá þessu er sagt í kínversku dagblaði í dag en heilbrigðisyfirvöld segja að þau hafi ekki fengið neina tilkynningu um að fuglaflensa hafi greinst í mönnum í landinu.

Ef rétt reynist að stúlkan hafi látist af völdum hins banvæna H5N1-stofns fuglaflensuveirunnar er það fyrsta dauðsfallið í Kína, en á síðustu tveimur árum hafa yfir 60 manns látist úr fuglaflensu í fjórum öðrum Asíuríkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×