Erlent

Símasambandi komið á

Símasambandi hefur verið komið á milli pakistanska og indverska hluta Kasmírhéraðs eftir að jarðskjálfti reið þar yfir í síðustu viku. Margir íbúar svæðanna báðum megin við landamærin geta því nú í fyrsta skipti haft samband við ættingja sína og hafa stjórnvöld ákveðið að símtölin verði ókeypis. Bæði indversk og pakistönsk stjórnvöld hafa boðist til að opna landamærin til að auðvelda hjálparstafið á hamfarasvæðunum og er búist við að svo verði gert í þessari viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×