Erlent

Ekki synda með hvölum

Stjórnvöld í Kosta Ríka hafa bannað fólki að synda með höfrungum og hvölum. Þetta sagði hópur umhverfisverndarsinna í gær, en sund með hvölum hefur notið vaxandi vinsælda hjá ferðamönnum í Kosta Ríka á undanförnum árum. Nýju reglurnar tóku gildi í lok júlí, en voru ekki kynntar opinberlega fyrr en í gær, þegar umhverfisverndarhópurinn PROMAR kynnti nýju lögin. Samkvæmt þeim verður vísindafólki ekki einu sinni leyft að synda með höfrungum og hvölum. Einnig er búið að leggja bann við að hvölum og höfrungum verði haldið í kvíum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×