Erlent

Hittir halastjörnuna þann 4. júlí

Bandaríska geimferðastofnunin ætlar að skjóta eldflaug á halastjörnuna Tempel-1 hinn 4. júlí. Búast má við miklu sjónarspili í geimnum. Geimfarinu Deep Impact var skotið á loft í janúar síðastliðnum til móts við halastjörnuna Tempel-1. Ferðin til þessa hefur gengið vel og Deep Impact er óðum að nálgast stjörnuna. Tuttugu og fjórum klukkustundum fyrir mestu nálægð geimfarsins frá Tempel-1 verður eins metra langri 360 kílóa flaug skotið frá því á halastjörnuna. Flaugin á að hitta Temple-1 þegar geimfarið er næst henni og er búist við miklu sjónarspili í geimnum. Það er ekki bara geimfarið sem á að safna upplýsingum sem fást í þessum árekstri. Alþjóðlegu neti stjörnurannsóknarstöðva á jörðu niðri verður beint að Temple-1 og sömuleiðis Hubble-geimsjónaukanum og öðrum rannsóknartækjum sem eru úti í geimnum. Vísindamenn vita í raun ekkert hvað gerist þegar flaugin hittir Temple-1, ef hún þá hittir. Það er því nokkuð víst að þeir verða með augun límd við stjörnukíkjana að morgni 4. júlí, sem eins og margir vita er þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna, þegar áreksturinn á að verða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×