Menning

Úti vera og fræðsla undir jökli

Lögð verður áhersla á léttar gönguferðir og sögulegan fróðleik í tveggja daga skemmtiferð um Snæfellsnes sem Hópferðamiðstöðin-Vestfjarðaleið í samvinnu við Ferðafélag Íslands efnir til um næstu helgi. Þar verður farið um hið magnaða svæði undir jökli í fylgd kunnugs heimamanns. Verðið er hagstætt enda um kynnisferð að ræða, eða aðeins 6.500 kr á mann fyrir rútuferð, leiðsögn, grillveislu, morgunverð og gistingu í svefnpokaplássi en 500 króna aukagjald er fyrir uppbúið rúm. Hálft gjald greiðist fyrir börn yngri en 14 ára svo um fjölskylduvæna ferð að ræða.

Gist verður að Hofi í Staðarsveit en um söguleiðsögn sér Sæmundur Kristjánsson. Staðirnir Búðir og Frambúðir, Langaholt, Hraunhöfn, Stórikambur og Öxl koma við sögu svo og persónurnar Björn Breiðvíkingakappi og Guðríður Þorbjarnardóttir. Farið verður um Stapasvæðið og gengið út að Hellnum þar sem kaffihús finnst í fjörunni. Gestahús Þjóðgarðsins verður opið og ferðalangar tylla sér niður á Þúfubjarg og horfa til Lóndranga. Fleiri magnaðir staðir verða skoðaðir eins og Djúpalónssandur, Gufuskálar og í lokin Sjóminjasafnið á Hellissandi. Hægt verður að fara í laugina á Lýsuhóli, bragðað verður á ölkelduvatni og gefin kostur á göngu á Eldborg í Hnappadal.

Brottför verður á laugardsmorgun frá Ferðafélagshúsinu Mörkinni 6, kl. 8 en farmiða þarf að kaupa fyrirfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×