Úti vera og fræðsla undir jökli 13. apríl 2005 00:01
Lögð verður áhersla á léttar gönguferðir og sögulegan fróðleik í tveggja daga skemmtiferð um Snæfellsnes sem Hópferðamiðstöðin-Vestfjarðaleið í samvinnu við Ferðafélag Íslands efnir til um næstu helgi. Þar verður farið um hið magnaða svæði undir jökli í fylgd kunnugs heimamanns. Verðið er hagstætt enda um kynnisferð að ræða, eða aðeins 6.500 kr á mann fyrir rútuferð, leiðsögn, grillveislu, morgunverð og gistingu í svefnpokaplássi en 500 króna aukagjald er fyrir uppbúið rúm. Hálft gjald greiðist fyrir börn yngri en 14 ára svo um fjölskylduvæna ferð að ræða. Gist verður að Hofi í Staðarsveit en um söguleiðsögn sér Sæmundur Kristjánsson. Staðirnir Búðir og Frambúðir, Langaholt, Hraunhöfn, Stórikambur og Öxl koma við sögu svo og persónurnar Björn Breiðvíkingakappi og Guðríður Þorbjarnardóttir. Farið verður um Stapasvæðið og gengið út að Hellnum þar sem kaffihús finnst í fjörunni. Gestahús Þjóðgarðsins verður opið og ferðalangar tylla sér niður á Þúfubjarg og horfa til Lóndranga. Fleiri magnaðir staðir verða skoðaðir eins og Djúpalónssandur, Gufuskálar og í lokin Sjóminjasafnið á Hellissandi. Hægt verður að fara í laugina á Lýsuhóli, bragðað verður á ölkelduvatni og gefin kostur á göngu á Eldborg í Hnappadal. Brottför verður á laugardsmorgun frá Ferðafélagshúsinu Mörkinni 6, kl. 8 en farmiða þarf að kaupa fyrirfram.
Ferðalög Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira