Innlent

Ráðnir á lágum kjörum

Pólverjar sem voru dæmdir fyrir að vinna ólöglega á Suðurlandi landi höfðu ekki fengið krónu greidda fyrir störf sín frá í febrúar og vissu ekki hvenær eða hversu mikið þeir fengju greitt. Þeir bjuggu heima hjá vinnuveitandanum. Lettar sem nýlega voru teknir hér fyrir störf án tilskilinna leyfa undirrituðu ráðningarsamning þremur til fjórum tímum fyrir brottför til Íslands. Fyrir dómi sögðust þeir hafa átt að fá 90 þúsund krónur og vinna 11 tíma vinnudag sex daga vikunnar. Ekki er vitað hvort upphæðin átti að vera á mánuði eða fyrir allt tímabilið. Þetta er langt undir íslenskum kjarasamningum. Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, telur að mennirnir hafi átt að fá 200 þúsund krónur á mánuði samkvæmt kjarasamningum. Á Íslandi er átta stunda vinnudagur og 40 stunda vinnuvika. Lágmarkslaunin eru 104 þúsund krónur á mánuði fyrir dagvinnu og segir hann að mennirnir hafi því frekar átt að fá um 200 þúsund krónur á mánuði að yfirvinnu meðtalinni. Við bætast síðan ýmis réttindi og tryggingar. Ekkert er vitað um skil á opinberum gjöldum vegna mannanna og segist Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknastjóri ekki tjá sig um einstök mál. Störf skattrannsóknastjóra beinast mikið að aðilum í veitingastarfsemi, mannvirkjagerð og verktakastarfsemi af ýmsu tagi. Almennt má segja að launagreiðendur eigi að halda eftir staðgreiðslu opinberra gjalda af starfsmönnum og skiptir þá ekki máli hvort það eru útlendingar eða Íslendingar. "Ef menn halda ekki eftir staðgreiðslu opinberra gjalda þá bætist sú brotastarfsemi við aðra brotastarfsemi sem kann að vera í gangi vegna þess að vinnuveitendur hafa fólk í vinnu án tilskilinna leyfa. Við mat á refsimeðferð þarf að meta hvort önnur brotastarfsemi kunni að vera fyrir hendi fyrir utan verksvið embættisins og þá eru meiri líkur á að slíkir aðilar séu sendir í lögreglumeðferð en ella," segir hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×