Miðasala á listahátíð hafin 1. apríl 2005 00:01
Miðasala á viðburði á Listahátíð í Reykjavík í vor hófst á hádegi í dag í Bankastræti 2. Fjölbreytt hátíð er fram undan, en fram koma meðal annars mezzosópransöngkonan Anne Sofie von Otter, sem er í hópi dáðustu söngkvenna samtímans eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Listahátíð. Von Otter verður með tónleika ásamt Bengt Forsberg í Háskólabíói þann 4. júní. Miðaverð er kr. 5.900 og 5.500. Franski sirkusinn Cirque sýnir söguna um Gústa trúð á Hafnarbakkanum í Reykjavík í samvinnu við Hátíð hafsins og Símann. Miðaverð á sirkusinn er 2.000 kr fyrir. börn og 3.000 kr. fyrir fullorðna. Tveir afar spennandi tónleikar á sviði heimstónlistar verða á hátíðinni. Það eru barkasöngvararnir í Huun Huur Tu frá Tuva við landamæri Mongólíu sem koma fram á Nasa opnunarhelgina 15. og 16. maí og fado-söngkonan Mariza sem sögð er mest spennandi rödd heimstónlistarinnar í dag, en hún verður á Broadway 27. og 28. maí. Verð aðgöngumiða á Huun Huur Tu er 3.200 og Marizu 3.500. Bergmál Ragnhildar Gísladóttur verður frumflutt í Skálholtsdómkirkju 21. maí og síðan í Langholtskirkju 24. maí. Þar nýtur hún liðisinnis Stomu Yamash'ta, eins þekktasta slagverksleikara heims, og Sjón semur textann. Fram koma Sigtryggur Baldursson og barna- og kammerkór Biskupstungna og Skólakór Kársness. Stjórnendur eru Þórunn Björnsdóttir kórstjóri og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Miðaverð á þá tónleika er 2.200 kr. fyrir börn og 3.000 kr. fyrir fullorðna. Lady and Bird, dúó skipað þeim Barða Jóhannssyni og Keren Ann, sem er ein skærasta poppstjarna Frakka, flytja verk sem frumflutt var í Amerísku kirkjunni í París í Íslensku óperunni 28. maí ásamt Monicu Abendroth hörpuleikara og íslenskum kór. Kórstjórar eru þeir Árni Harðarson og Michael Dravigny. Miðaverð er 2.500 kr. Pacifica-kvartettinn sem er m.a. skipaður Sigurbirni Bernharðssyni er talinn einn fremsti kvartett Bandaríkjanna í dag. Tvennir tónleikar með ólíkri efnisskrá verða með kvartettinum 28. og 29. maí og einir á Ísafirði 4. júní. Í millitíðinni mun hann m.a. annars halda tónleika á Litla-Hrauni og leika fyrir íslensk skólabörn. 3.200 kr. kostar á tónleikana. Einnig verða Beethoven-sónöturnar fyrir píanó og fiðlu fluttar í heild sinni á Íslandi í fyrsta sinn í aldarfjórðung. Flytjendur eru þau Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og Gerrit Schuil. Flutningur allra tíu sónatanna fer fram í þremur hlutum þrjá sunnudaga í röð í Ými, dagana 15., 22., og 29. maí kl. 11. Miðaverð á eina tónleika er kr. 2.500 kr. en á alla þrjá 5.500 kr. Sama gildir um sýningar dansflokkanna þriggja frá Finnlandi, Tékklandi og Frakklandi sem Íslenski dansflokkurinn, í samvinnu við Listahátíð, býður upp á. Sýningar fara fram í Nasa 27. maí og Borgarleikhúsinu 29. maí. Miðaverð er kr. 2.500 kr. á eina sýningu en 5.500 á allar þrjár sýningarnar. Víóluhátíð verður einnig á Listahátíð í tengslum við alþjóðlega Víóluráðstefnu sem haldin er dagana 2. til 5. júní. Tónleikar verða í Ými 3. júní. Frumflutt verða ný verk eftir Hafliða Hallgrímsson, Daníel Bjarnason og Garth Knox. Einleikari er Þórunn Ósk Marinósdóttir. Miðaverð er 2.500 kr. Að lokum má nefna tónleika Yuris Bashmets og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2. júní. Miðasala á þá tónleika fer fram hjá Sinfóníuhljómsveitinni. Miðsala Listahátíðar er opin virka daga kl. 12 - 18 og laugardaginn 2. apríl og sunnudaginn 3. apríl er opið 12 - 16. Sími miðasölunnar er 552-8588.
Listahátíð í Reykjavík Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Fleiri fréttir Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum „Ég er sáttur við það dagsverk“ Glatkistunni lokað Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykjavíkur Stórstjörnur úr dansheiminum í Tjarnarbíói Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri „Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars?“ Dularfull glæpasaga fær bókafólk til að klóra sér í kolli Ungfrú Ísland og Hringir Orfeusar og annað slúður með flest verðlaun á Grímunni Frægasti ástarþríhyrningur sögunnar fær nýtt líf Ljóð Lomma reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar Eva Fretheim hlaut Glerlykilinn Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Hildur í aðalhlutverki á Listahátíð í Reykjavík Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“