Tíska og hönnun

Úr háborg tískunnar

Tískuhúsið Lanvin er eitt það elsta í París ef ekki það elsta, með langa sögu að baki. Það var árið 1889 sem Jeanne Lanvin hóf rekstur sinn á rue Faubourg St. Honoré og var frumkvöðull á sínu sviði. Sagan var reyndar orðin svo löng að Lanvin var alveg að lognast út af, gamaldags og klassísk. En í október 2002 kom upp á dekk nýr hönnuður, Alber Elbaz. Þessi Ísraeli fæddur 1961 hafði verið um tíma hjá Guy Laroche og fengið góðar viðtökur. 1998 tók hann við kvenlínunni hjá Yves Saint Laurent en var rekinn þaðan þegar Gucci keypti YSL í árslok 1999 og Tom Ford tók þar við. Elbaz tók við hönnun kvenlínu Lanvins og hefur á örfáum árum komið tískuhúsinu svo rækilega aftur á kortið að tískublaðamenn halda vart vatni og segja tískusýningar Lanvin með þeim bestu. Reyndar fékk síðasta sýning ekki alveg eins góða dóma og þær fyrri. Elbaz byrjaði snemma að blanda saman glæsileika og hráu útliti hjá Lanvin -- án þess að falda eða fóðra -- silki, snáksskinn og loðfeldir, með endunum út úr og rennilásum sem gáfu nútímalegt útlit á klassíska hönnun. Fortíð og nútíð í bland. Hönnun hans er kvenleg heldur uppfull af litlum smáatriðum sem setja punktinn yfir i-ið.

Hjá Lanvin hafa verið notaðar aldagamlar aðferðir til dæmis við plíseringar sem tekur fleiri daga að sauma þar sem hver felling er handsaumuð og efnið í hverja flík getur farið upp í þrjátíu metra. Fyrir vikið er ekki um að ræða fatnað sem kallast tilbúinn til fjöldaframleiðslu (Prét-á-porter), heldur sem nálgast hátísku (Haute couture), þar sem hver flík er saumuð fyrir sig. Elbez hefur í raun fundið upp nýtt form sem er þarna á milli. Hann notar einnig arfleifð fortíðar og lítur óspart í teikningasafn Jeanne Lanvin.

Á tískusýningunni fyrir veturinn 2005-6 var sýndur stuttur kjóll úr tjulli með víðu pilsi og á efrihlutanum var útsaumað fiðrildi með pallíettum tekið beint úr teikningum Jeanne Lanvin frá 1920. Perlurfestar sem eru notaðar margar saman hafa verið meðal fylgihluta Lanvins um árabil eru vafðar í tjull eða silki. Þær koma sömuleiðis beint úr arfleið tískuhússins.

Nú sjást þess merki að hönnuðurinn er aðeins að færa sig í þá átt að ganga endanlega frá fötunum, ekki skilja þau eftir eins og hætt hafi verið í miðju verki. Alber Elbez hefur hins vegar ástæðu til að sýna eitthvað alveg nýtt á næstu sýningu, annars gæti hann farið að staðna (www.lanvin.fr).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×