Tíska og hönnun

Skapandi samstarf

Domenico Dolce og Stefano Gabbana hafa fyrir löngu fest sig í sessi í hópi flottustu og ferskustu hönnuða tískuheimsins. Þetta ítalska par sem fyrir stuttu sleit sambúð sinni byrjaði ferilinn fyrir tuttugu árum en það var á Sikiley sem leiðir þeirra lágu saman og menning Sikileyjar hefur verið þeim innblástur alla tíð síðan.

Gabbana hefur mjög listrænt og leikrænt auga á meðan smáatriðin og nákvæmni skipta öllu máli hjá Dolce. Sameining þessara ólíku póla hafa svo skapað frábæra samsuðu af kynþokkafullum, litríkum og spennandi fatnaði sem selst eins og heitar lummur um allan heim.

Tvíeykið hefur séð um tónleikabúninga fyrir stórstjörnur á borð við Madonnu og Kylie Minoque og kvikmyndastjörnurnar á rauða dreglinu skarta iðulega fallegum flíkum frá D&G.

Sem fyrr segir skildu leiðir þeirra Dolce og Gabbana í einkalífinu ekki alls fyrir löngu en þeir hyggjast halda samstarfinu áfram og ætla hvergi að slaka á í framleiðslu á hátískufatnaði fyrir heimsbyggðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×