Aukin áhætta tekin í flugi 25. febrúar 2005 00:01
Breskri júmbóþotu var flogið á þremur hreyflum átta þúsund kílómetra leið frá Los Angeles í Bandaríkjunum til Bretlands eftir að fjórði hreyfillinn bilaði í flugtaki. Flugvélin átti að lenda í London en þegar til Bretlands var komið var eldsneytið á þrotum og því lenti vélin í Manchester. Í breska blaðinu The Times er þess getið til að það hafi spilað inn í ákvörðun stjórnenda British Airways að halda fluginu áfram frekar en að lenda að flugfélagið hefði þurft að endurgreiða farþegum flugmiðana vegna tafa samkvæmt evrópskri reglugerð sem hafði nýlega tekið gildi. Samtök flugmanna hafa varað við því að reglugerðin yki líkur á að þrýst væri á flugmenn að taka aukna áhættu í farþegaflugi. Flugstjórinn hringsólaði nærri Los Angeles meðan yfirmenn hans tóku ákvörðun um að halda fluginu áfram. Flugvélin náði ekki venjulegri flughæð og brenndi eldsneyti því hraðar en venjulega. Stjórnendur British Airways sögðu í samtali við The Times að nýju reglurnar hefðu ekkert haft með ákvörðun sína að gera. Fljúga mætti þotunni á þremur hreyflum og tveimur ef nauðsyn krefði.
Erlent Fréttir Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Sjá meira