Almenningur hundfúll út í Bush 23. febrúar 2005 00:01
Þrátt fyrir að leiðtogar Evrópu og Bandaríkjanna séu að sættast og grafa stríðsöxina er hinn almenni Evrópubúi enn þá hundfúll út í Bush Bandaríkjaforseta. Andstaðan endurspeglast í miklum mótmælum sem hafa brotist út hvar sem Bush hefur farið um Evrópu. Það er ekki hægt að segja annað en að þíða sé komin í samskiptin yfir Atlantsála í kjölfar heimsóknar Bush Bandaríkjaforseta til Evrópu. En þrátt fyrir það eru Evrópubúar engu jákvæðari í garð Bush og fólk hefur þust út á stræti hvar sem Bush ber niður til að mótmæla heimsókn hans. Yfir þúsund manns mótmæltu í kuldanum í Brussel í gær þegar Bush hitti leiðtoga aðildarríkja ESB og til átaka kom eftir að fólkið henti mólotov-sprengju og glerflöskum í átt að lögreglumönnum. Lögreglan greip til þess ráðs að sprauta vatni á mannfjöldann sem gafst þá fljótlega upp. Í Þýskalandi söfnuðust einnig mörg hundruð manna saman á götum úti í gær til þess að mótmæla heimsókn Bush. Þar lét fólk þó nægja að ganga um með mótmælaspjöld. Bush sat á fundi með Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, í morgun í borginni Mainz og þar var sama sagan, fólk mætti til að mótmæla. Gríðarleg öryggisgæsla í kringum Bush hefur líka hleypt illu blóði í íbúa Mainz sem eru ekki vanir slíku umstangi. Fólk hefur meðal annars verið flutt úr húsum sínum og niðurföll lokuð með rafsuðu til að koma í veg fyrir að árásarmenn geti komið fyrir sprengju til að granda forsetanum.
Erlent Fréttir Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Sjá meira