Menning

Vaxandi örorka vegna sykursýki

Þetta styðja niðurstöður könnunar Sigurðar Thorlaciusar tryggingayfirlæknis og fleiri lækna sem greint var frá á ráðstefnu um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum sem nýlokið er í Öskju, náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands. Þar kemur fram að örorka vegna sykursýki hefur aukist verulega á síðustu árum hjá íslenskum körlum. Á sama tíma hefur ekki orðið marktæk aukning hjá konum. Læknarnir báru saman algengi örorku vegna sykursýki á árunum 1990 og 2003. Kannað var í hve mörgum tilvikum greining sykursýki kom fyrir í örorkumati og hvort hún krafðist meðferðar með insúlíni eða ekki. Af niðurstöðum rannsóknarinnar eru dregnar þær ályktanir að hjá körlum hafi algengi örorku vegna sykursýki aukist verulega umfram algengi örorku almennt frá 1990 til 2003, sérstaklega vegna sykursýki sem krefst meðferðar með insúlíni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×