Leit þýskra tollayfirvalda ólögmæt 4. ágúst 2005 00:01
Skipverjarnir tveir af togaranum Hauki ÍS sem handteknir voru í Bremerhaven í Þýskalandi í byrjun janúar með sjö kíló af kókaíni og hassi í klefum sínum eru lausir allra mála eftir að þýskur dómstóll komst að því að leit lögreglu og tollgæslu hefði verið ólögmæt. Hefur rannsókn málsins verið hætt í kjölfarið enda hafði lögregla engin önnur sönnunargögn en efnin sjálf þar sem mennirnir játuðu aldrei sök sína og þar sem leitin var dæmd ólögmæt var því úr engu að moða fyrir ákæruvaldið. Fimmtán ára fangelsi að lágmarki beið mannanna tveggja hefðu þýskir dómstólar komist að sekt þeirra en annar mannanna er komin vel yfir fimmtugsaldur. Vakti málið talsverða athygli þegar upp komst enda þótti magn fíkniefnanna afar mikið og var um það fjallað í þýskum fjölmiðlum. Var skipið að ljúka við að landa karfa í Bremerhaven þegar 40 manna leitarhópur lögreglu og tollayfirvalda framkvæmdi leitina en þaðan lá leið skipsins beint til Íslands og ætlaði lögregla að smygla ætti efnunum hingað til lands til dreifingar. Var gerð ítarleg leit í skipinu skömmu áður en það lagði úr höfn eftir löndun en öðrum skipverjum en þeim tveimur sem efni fundust hjá var leyft að halda för sinni til Íslands áfram eftir að þeirri leit var hætt. Voru tvímenningarnir dæmdir til sex mánaða gæsluvarðhalds en fengu lausn fyrr og voru báðir komnir hingað heim um miðjan maí. Til stóð að óska aðstoðar lögreglu hérlendis vegna málsins en til þess kom þó ekki og geta sakborningarnir tveir nú andað rólegar enda komst dómstóllinn að því að leitin í skipinu hefði ekki verið samkvæmt lögum þar sem dómsúrskurð vantaði og málið verið látið niður falla vegna þess.
Fréttir Innlent Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Fleiri fréttir Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Sjá meira