Engin fríverslunarsamningur 6. nóvember 2005 15:00
Tveggja daga leiðtogafundi Ameríkuríkja lauk í gær án nokkurs samkomulags um fríverslun milli álfanna. Andstaða fimm ríkja undir forystu Hugos Chavez, forseta Venesúela réði þar úrslitum. Það hefur lengi verið áhugamál margra Ameríkuríkja að gera fríverslunarsamning milli Norður- og Suður-Ameríku og mynda þannig stærsta fríversæunarsvæði heims. Þrjátíu og fjögur ríki eru í álfunum tveimur og höfðu tuttugu og níu þeirra lýst áhuga á að vinna að því að ljúka samningaviðræðum um það sem gengið hefur undir nafninu Free Trade Area of the Americas, eða FTAA. Eftir margra klukkustunda fundahöld sem seinkuðu lokum ráðstefnunnar um átta tíma, varð ljóst að ekki næðist samkomulag um fríverslun að þessu sinni, þar sem Brasilía, Argentína, Urugvæ, Paragvæ og Venesúela lýstu andstöðu sinni við slíkan samning og varð hvergi hnikað þrátt fyrir mikinn þrýsting, einkum frá Mexíkó og Bandaríkjunum. Þúsundir mótmælenda fyrir utan fundarstaðinn í Argentínu voru á sama máli og löndin fimm og lýsti Chavez því yfir að hann ætlaði að ,,jarða" FTAA. Vicente Fox, forseti Mexíkó sagði rétt fyrir löndin tuttugu og níu sem styðja fríverslunarsamninginn, að halda áfram viðræðum og sniðganga þá þessi fimm sem ekki vildu vera með. Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu hefur boðist til að reyna að ná sáttum og draga Chavez og félaga að samningaborðinu á nýju ári. Þetta eru ekki fyrstu fríverslunarviðræðurnar sem leysast upp, því fundum Alþjóða viðskiptamálastofnunarinnar um sama efni lauk án nokkurs haldbærs árangurs bæði í Seattle 1999 og í Cancun í hittifyrra.
Erlent Fréttir Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Sjá meira