Ekki aðeins pyntingar í Abu Ghraib 18. febrúar 2005 00:01
Svo virðist sem Bandaríkjaher noti pyntingar á kerfisbundinn hátt til að yfirheyra fanga. Komið hefur í ljós að bandarískir hermenn hafa ekki bara stundað pyntingar í Abu Ghraib fangelsinu í Írak og á Guantanamo á Kúbu, heldur líka í Afganistan. Ljósmyndirnar frá Abu Ghraib hafa með réttu vakið hörð viðbrögð um allan heim en nú hefur komið í ljós að þessar pyntingar eru á engan hátt einsdæmi. Bandarískir hermenn í Afganistan notuðu svipaðar aðferðir, settu poka yfir höfuð fanga, bundu þá saman, settu á svið aftökur og tóku myndir af öllu saman. Þegar Abu Ghraib myndirnar komu fram á sjónarsviðið urðu hermennirnir sem voru í Afganistan hræddir og eyðilögðu þær myndir sem þeir höfðu tekið af svipuðum atvikum. Þetta er meðal þess sem lesa má um í margvíslegum skjölum og minnisblöðum frá bandarísku alríkislögreglunni FBI sem hafa verið lögð fram í dómsmáli sem bandarísku mannréttindasamtökin American Civil Liberties hafa höfðað á hendur Bandaríkjastjórn til að fá úr því skorið hvort kerfisbundið sé brotið á föngum í haldi stjórnarinnar. Jameel Jaffer, lögfræðingur American Civil Liberties, segir að skjölin sýni að misþyrmingarnar séu ekki einangruð tilvik heldur hafi þær verið kerfisbundnar og útbreiddar. Föngum hafi ekki bara verið misþyrmt í Abu Ghraib í Írak heldur um gervallt Írak og Afganistan og einnig á Guantanamo-flóa. Í þessum skjölum má líka lesa umkvartanir bandarískra hermanna til sinna yfirmanna í Washington þar sem þeir segjast hafa orðið vitni að því hvernig bandarískir sérsveitarhermenn réðust á óbreytta, almenna borgara í tveimur þorpum í Afganistan í maí á síðasta ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira