Kosningarnar hafa gengið vel 9. janúar 2005 00:01
Forsetakosningarnar í Palestínu voru framlengdar um tvær klukkustundir nú síðdegis, meðal annars vegna þess að kosningaþátttaka er meiri en búist var við. Þrátt fyrir ýmis konar vandkvæði virðast flestir á þeirri skoðun að kosningarnar hafi gengið vel fyrir sig. Alls eru átta hundruð erlendir kosningaeftirlitsmenn í Palestínu til að tryggja að forsetakosningarnar, þær fyrstu síðan 1996, gangi snurðulaust fyrir sig. Fyrr í dag bárust fregnir af því að ísraelskir hermenn hefðu vísað mörg hundruð Palestínumönnum frá kjörstöðum á herteknu svæðunum. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna og formaður BSRB, sem staddur er í Austur-Jerúsalem í boði palestínskra verkalýðshreyfinga, segir að meðal annars vegna þessa hafi verið ákveðið að hafa kjörstaði opna lengur eða allt til klukkan sjö að íslenskum tíma. Ögmundur segist hafa orðið var við að fólki hafi verið vísað á milli kjörstaða, sérstaklega í Austur-Jerúsalem, en samkvæmt þeim fréttum sem hann hafi haft hafi kosningarnar gengið vel fyrir sig. Þó ekki betur en svo að ástæða hafi verið til að framlengja kjörfund um tvær klukkustundir. Kosningaþátttaka virðist ætla að verða góð þrátt fyrir að ýmsar herskáar hreyfingar Palestínumanna eins og Hamas-samtökin hafi hvatt fólk til að hunsa kosningarnar. Ögmundur segir þó yfirgnæfandi meirihluta fólks líklegan til að taka þátt í kosningunum. Um miðjan dag hafi þegar 60% kosningabærra manna nýtt sér atkvæðisrétt sinn. Úrslitin virðast hins vegar ráðin. Mahmoud Abbas, sem er frambjóðandi Fatah-hreyfingar Jassers Arafats, nýtur stuðnings yfirgnæfandi meirihluta Palestínumanna. Þó er athyglisvert að andstæðingur hans, Mustafa Barghouti, virðist ætla að fá 20-30% fylgi en það yrði þá í fyrsta sinn sem Palestínumenn greinast í tvær andstæðar lýðræðislegar fylkingar. Talið er að úrslit kosninganna muni styrkja stjórn Palestínumanna á herteknu svæðunum og veita henni lýðræðislegt aðhald.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira