Myndband sýnir ógnarkraft flóðsins 9. janúar 2005 00:01
Myndband sem sýnir þegar flóðbylgjan á annan dag jóla skellur á Aceh-hérað í Indónesíu sýnir vel þvílíkir ógnarkraftar voru að verki. Jarðskjálftinn sem reið yfir á undan olli líka miklu tjóni í héraðinu. Myndatökumaður sem ætlaði að taka myndir í brúðkaupi í Banda Aceh, höfuðstað Ache-héraðs, í norðurhluta Indónesíu, náði þessum myndum þegar flóðbylgjan skall á borginni. Í fyrstu er straumurinn ekki þungur og fólk hleypur eða ekur undan honum. Smám saman bætist í og innan nokkurra sekúndna er flóðið orðið straumþungt og eirir engu. Hamfarirnar í Aceh-héraði byrjuðu með jarðskjálftanum sem mældist níu á Richter og átti upptök sín skammt frá. Jarðskjálftinn sjálfur olli gríðarlegu tjóni og þegar flóðbylgjan skall á ströndinni aðeins um hálftíma síðar var margt fólk úti við að kanna skemmdirnar eftir skjálftann. Alls er talið að yfir 104 þúsund Indónesar hafi farist í hamförunum. Áhrifa hamfaranna gætir einkum í Aceh-héraði í Indónesíu og á Srí Lanka en á báðum stöðum hafa geisað borgarastyrjaldir. Á fyrstu dögunum eftir hamfarirnar var sátt um vopnahlé svo hægt væri að koma nauðstöddum til bjargar en nú spretta deilur upp að nýju. Til að mynda kom til skotbardaga í Aceh-héraði í morgun og allt er hlaupið í bál og brand á Srí Lanka eftir að ríkisstjórn landsins neitaði Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um leyfi til að heimsækja yfirráðasvæði Tamíl-tígra.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira