Ekki ákærður fyrir að skjóta Íraka 24. febrúar 2005 00:01
Bandarískur hermaður sem skaut særðan og óvopnaðan írakskan uppreisnarmann til bana í nóvember á síðasta ári verður ekki ákærður þar sem sönnunargögn skortir. Atvikið náðist á myndband en það reyndist ekki nóg. Atvikið vakti heimsathygli enda ekki á hverjum degi sem sjónvarpsvélar ná myndum af stríðsátökum í þvílíku návígi þótt enginn efist um að svona atvik séu afar algeng. Myndbandsupptakan, sem er frá bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC, sýnir þegar bandarískir hermenn koma inn í mosku í Falluja og finna þar nokkra helsærða Íraka innan um aðra sem höfðu fallið í átökum við Bandaríkjaher daginn áður. Á meðan myndatökumaðurinn er að taka myndir af særðum manni heyrist einn af bandarísku hermönnunum hrópa að einn Írakanna sé að þykjast vera dauður. Hermaðurinn heldur því fram að hann hafi séð hreyfingu þar sem Írakinn lá á gólfinu og hann hafi talið að hann væri að seilast eftir byssu. Myndatökumaður NBC hefur hins vegar vottað, það sem reyndar sést líka á myndbandinu, að Írakinn hafi verið á lífi þegar bandaríski hermaðurinn skaut hann og jafnframt að hann hafi hvorki verið vopnaður né ógnandi á nokkurn hátt. Þrátt fyrir þetta segja hermálayfirvöld að sönnunargögn séu ófullnægjandi og nægi ekki til að ákæra hermanninn.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Sjá meira