50 létust í sprengjuárásum 19. febrúar 2005 00:01
Að minnsta kosti 50 manns létust í sprengjuárásum uppreisnarmanna í Írak í gær þegar Ashoura, trúarhátíð sjía-múslíma, náði hámarki. Meira en hundrað manns særðust í árásunum. Talið er að súnní-múslímar hafi skipulagt árásirnar og eru flestir hinna látnu sjía-múslímar. Í fyrradag létust 36 í árásum uppreisnarmanna. Þetta er annað árið í röð þar sem umfangsmiklar árásir eru gerðar á meðan Ashoura-trúarhátíðin stendur yfir. Í fyrra lést 181. Flestar árásirnar í gær voru gerðar í hverfum sjía-múslíma í Bagdad en einnig voru árásir annars staðar í landinu. Sjía-múslímar unnu stórsigur í kosningunum í lok janúar og er óttast nú sé að myndast gjá milli þeirra og súnní-múslíma sem sniðgengu kosningarnar að miklu leyti. "Árásir hryðjuverkamanna, sem kalla sig múslíma, á moskur og helgidóma sjía-múslíma eru ekkert annað en tilraun til að koma af stað trúarlegu stríði," segir Mouwaffaq al-Rubaie, þjóðaröryggisráðgjafi Íraka. "Írakar munu ekki leyfa því að gerast." Al-Rubaie segir hryðjuverkaleiðtogann Abu Musab al-Zarqawi og fyrrverandi fulltrúa Baath stjórnmálaflokksins standa á bak við árásirnar. Hillary Clinton, öldungadeildarþingmaður og eiginkona Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseta, kom til Bagdad í gær ásamt bandarískri sendinefnd. "Sú staðreynd að uppreisnarmenn skuli gera árásir meðan á trúarhátíð stendur yfir og fólk biður er fyrir mér merki um örvæntingu," sagði Hillary Clinton. "Uppreisnarmönnunum er að mistakast ætlunarverk sitt sem er að skapa ringulreið og borgarastyrjöld." Ashoura-trúarhátíðin er haldin til að minnast andláts Imam Hussein, barnabarns Múhameðs spámanns. Hussein var myrtur á sjöundu öld og er grafinn við gulli sleginn helgidóm í borginni Karbala.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira