Alda sjálfsmorðsárása á hátíð 19. febrúar 2005 00:01
Alda sjálfsmorðsárása hélt áfram í Írak í dag um leið og ein mikilvægasta trúarhátíð sjíta náði hámarki. Tilraunir til að forðast blóðbað á hátíðinni hafa mistekist. Múslímar í Írak skiptast í meginhópa, súnníta og sjíta. Sjítar eru fjölmennari en hafa ætíð þurft að lúta stjórn súnníta í Írak sem höfðu töglin og hagldirnar undir stjórn Saddams Husseins. Sjítar unnu hins vegar sigur í nýafstöðnum kosningum og fengu meirihluta atkvæða. Súnnímúslimar sátu að mestu heima og fengu því nær ekkert fylgi í kosningunum. Nú stendur yfir ein mikilvægasta trúarhátíð sjítamúslima, Ashura, sem náði hápunkti sínum í dag. Um leið voru bornir til grafar þeir sjítamúslimar sem fórust í sjálfsmorðsárásum á föstudag. Á þessari hátíð í fyrra létu tæplega 200 sjítar lífið í árásum öfgamanna súnnímúslíma. Öfgahópar súnníta réðu að minnsta kosti 35 sjíta af dögum á fimmtudag og 27 í gær og blóðbaðið hélt áfram í dag. Á þriðja tug hefur farist í nokkrum sjálfsmorðsárásum. Enn sem komið er vilja menn ekki kalla þetta trúarbragðastríð en árásirnar bera glöggt vitni um þá erfiðleika sem blasa við þjóðinni á komandi mánuðum og árum.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Sjá meira