Heimurinn gleymi ekki fórnarlömbum 20. febrúar 2005 00:01
Það er mikilvægt að heimurinn gleymi ekki fórnarlömbum hamfaranna í Suðaustur-Asíu og aðstoði þau áfram við að koma lífi sínu á réttan kjöl, segja tveir fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna sem eru í heimsókn á flóðasvæðunum. George Bush eldri og Bill Clinton hafa verið í heimsókn á hamfarasvæðunum í Asíu. Þeir hafa ítrekað sýnt í heimsókninni hvað afleiðingar flóðbylgjunnar hafa mikil áhrif á þá. Þeir voru um helgina í heimsókn í Aceh-héraði í Indónesíu sem varð hvað verst úti. Þar heimsóttu þeir fórnarlömb flóðanna á heimili þeirra og viðurkenndu að þeir hefðu aldrei séð nokkuð þessu líkt. Bush eldri lagði mikla áherslu á að heimsbyggðin yrði að halda áfram að gefa fé til að aðstoða fórnarlömbin við að byggja upp líf sitt á ný. Hann hvatti fólk til þess að láta meira fé af hendi rakna. Bandaríkjamenn hefðu sýnt mikla gjafmildi en Bush taldi að unnt væri að gefa mun meira. Það væri þeim Clinton ljóst eftir dvöl í bæjum sem hefðu hreinlega lagst í rúst í flóðunum. Bill Clinton tók í sama streng. Hann sagði hann hefði sett hljóðan vegna þess að ef til vill hefði aðeins einn metri ráðið því hvort mæður, feður og börn hefðu lifað af eða látist. Hjálpa yrði íbúum á hamfarasvæðunum við uppbygginguna og láta koma upp viðvörunarkerfi til þess að draga úr áhrifum stórslysa á borð við hamfarirnar á annan dag jóla svo færri létust.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Sjá meira