Kínverjar og Japanar kljást 17. apríl 2005 00:01
Kínverski utanríkisráðherrann Li Zhaoxing tjáði japönskum starfsbróður sínum í gær að kínversk stjórnvöld hefðu ekkert að biðjast afsökunar á, en japanskir ráðamenn hafa farið fram á að kínversk stjórnvöld biðji Japana afsökunar á and-japanskri múgæsingu í Kína sem leitt hefur meðal annars til þess að rúður voru brotnar í japanska sendiráðinu í Peking. Zhaoxing sakaði aftur á móti Japansstjórn um að troða Kínverjum um tær með því hvernig hún umgangist söguritun um það sem Japanar aðhöfðust í síðari heimsstyrjöld. Kínversk stjórnvöld heimiluðu ný fjöldamótmæli í að minnsta kosti sex borgum nú um helgina, en mótmælunum er beint gegn viðleitni Japana til að fá varanlegt sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og gegn því sem Kínverjar álíta vera tilraunir Japana til að loka augunum fyrir stríðsgrimmdarverkum þeirra á fjórða og fimmta áratugi tuttugustu aldar. Utanríkisráðherra Japans, Nobutaka Machimura, flaug til Peking í gær til að freista þess að jafna öldurnar í þessari alvarlegustu milliríkjadeilu asísku stórþjóðanna í áratugi. Machimura sagði það "mjög óheppilegt" að Kínastjórn skyldi ekki vera reiðubúin að biðjast afsökunar á hinum and-japanska múgæsingi. Á laugardag aðhafðist lögregla í Sjanghæ lítið er mótmælendur brutu rúður í japönsku ræðisskrifstofunni, gengu berserksgang á japönskum veitingastöðum og skemmdu bíla. "Svona uppákomur hjálpa ekki hið minnsta til að bæta samskipti landanna tveggja," sagði Hatsuhisa Takashima, talsmaður japanska utanríkisráðuneytisins. Óvild í garð Japana hefur verið kraumandi í Kína að undanförnu vegna umdeildra japanskra sögukennslubóka, borunar eftir gasi á svæði í Austur-Kínahafi sem bæði lönd telja tilheyra sinni efnahagslögsögu, og öryggisráðsumsóknar Japana. Eldri ágreiningsefni eins og tengslin við Taívan liggja þar einnig undir niðri.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Fleiri fréttir Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Sjá meira